|
|
05.09.2007 17:59:31 / helgavo
Jæja, þá er kominn september... Sumarið bara búið áður en það byrjaði! Það er búið að vera svo brjálað að gera í sumar að ég hef varla tekið eftir öllu þessu góða veðri sem allir eru búnir að vera að tala um... Núna er skólinn byrjaður aftur og ég ætla að vera flink að blogga - í alvöru!! Ég lofa! En er að bíða eftir kórstjórnarfundi og æfingu á eftir, þannig að ég er enn í vinnunni og ætti ekki að vera að eyða tíma í svona vitleysu! Og núna eru þessar 5 mínútur sem ég lofaði sjálfri mér í pásu búnar, svo ég ætla að halda áfram að vinna... Meira seinna, en þangað til segi ég eins og Hulda vinkona - Tata!
»
14.05.2007 17:53:47 / helgavo
Ég veit upp á mig skömmina, ég hef ekki gefið mér tíma í að
blogga undanfarið... Búin að vera á fullu í vinnunni og skólanum -
ekki alltaf jafn skemmtilegt, verð ég að játa! Fólk getur verið
alveg ótrúlega pirrandi! En nóg um það...
Því ég er enn svo ástfangin - meira en nokkurntíman - og lífið
er bara skemmtilegt 
Við Sölvi fórum úr í byrjun maí á projektassistentkúrs á
Borgundarhólmi. Við hittum allt hitt Nordjobb-fólkið og það var
bæði hressandi og gaman. Það er allt á fullu og ég neeeenni ekki að
pæla í vinnunni þegar ég er ekki að vinna - en geri það svo samt,
til ama fyrir alla mína nánustu, sem eru brááááðum komin með mikið
meira en nóg af Nordjobb 
Svo fórum við Svavar í bústað um helgina. Þetta var bústaðurin
hennar Gyðu og mættir voru (auk Gýðu, Svavars og yours truly)
Hafdís og Óli og Hulda og Theó. Þetta var bara gaman, fyrst fylgst
með Júróvisjón og síðan kosningarvökunni langt fram eftir
nóttu...
Hvað er annars nýtt? Jú! Hún Ynja er orðin útiköttur, eða svona
næstum því... Hún fékk nýja fína ól, fjólubláa með bjöllu og öllu,
og svo fær hún að hoppa ein útum eldhúsgluggann og dúlla sér í
garðinum og móunum. Erkióvinurinn, læðan í næsta húsi, er eiginlega
alveg hætt að voga sér inn í garðin og mín er nokkuð sátt með
sjálfa sig 
»
22.04.2007 15:11:08 / helgavo
Ótrúlega hefur þessi mánuður liðið hratt! Ég næ varla að
fylgjast með! Í fyrra fannst mér ég fara að sofa á föstudegi, vakna
á mánudegi, fara að sofa á mánudegi og vakna á föstudegi - svo
hratt leið tíminn. Núna er þetta orðið en verra. Ég fer að sofa 1.
hvers mánaðar, vakna um miðjan mánuðinn og veit svo ekki af mér
fyrr en mánuðirinn er að verða búinn!
Annars er lífið bara yyyyyndislegt! Vorið er yndislegur tími og
mér er alveg sama þótt rigni Það fraus saman núna aðfaranótt
sumardagsins fyrsta, þessvegna er ég bjartsýn um að þetta verði
frábært sumar!
Vorið er svo skemmtilegur tími - vorblóm og bjartar nætur, tréin
að springa út og ástin í loftinu. Allt fyllist af bjartsýni! Skítt
með að stressið er að sliga mann, enda önnin að vera búin og ég er
komin með aðstoðarmann í vinnunni. Þetta getur því bara skánað
héðan af 
Og afhverju stafar svo þessi bjartsýni mín? Ætli það sé ekki
bara af því að lífið er skemmtilegt!
»
14.03.2007 18:30:14 / helgavo
Jæja, ætli ég verði ekki að flýta mér að koma með nýja færslu,
svona til að halda þetta marsheit mitt...
Ég var að koma af ráðstefnu um rafræna skráningu og miðlun á
söfnum, á vegum safnaráðs. Þetta var mjög fróðlegt. Mér fannst samt
fyndið hvað ég er farin að þekkja marga í þessum bransa. Loksins er
ég farin að vera eitthvað annað í fræðunum en bara dóttir hennar
móður minnar, og þá er ég passlega hætt í safnabransanum - í
bili... Mig langar soldið að halda áfram í þessum geira, þetta er
skemmtilegur business. En ætli framtíðin ein muni ekki leiða í ljós
hvar ég enda!
Og svo var ég dugleg að koma Nordjobb-vinnubæklingunum út
til safnamanna - vonandi tekst mér að fá einhver Nordjobb í
safnageiranum út á þetta...
»
10.03.2007 21:48:32 / helgavo
Ég er sorgleg manneskja. Er að leka niður úr þreytu og raunar
komin upp í rúm á laugardegi fyrir kl. 10... Bara engan sem langar
að gera neitt skemmtilegt í kvöld (enda held ég að ég hafi bara
gott af því að hvíla mig )
Jói bróðir er komin á fast. Það er samt allt í lagi, því
stúlkan er svo yndæl Samt finnst mér þetta fyndið. Hann var
síðast á föstu áður en við Theó byrjuðum saman, þannig að okkur er
greinilega ekki ætlað að vera bæði á föstu á sama tíma...
Ég var á árshátíð sagnfræðinema í gær. Það var bara mjög
gaman. En voðalega finnst mér ég samt vera orðin gömul...
Ég hef ekkert af viti að segja, hugsa að ég láti bara hér
við sitja 
»
07.03.2007 23:44:52 / helgavo
Var að koma af forsýningu á 300 og ég get bara sagt eitt - vá!
Ekta bíómynd, sem þarf að sjá í bíó, en ég vil ekki segja
meir...
Ég veit að það hljómar furðulega, en já, ég á það til að
vaska upp og það er svosem sjón að sjá! Í gær tókst mér t.d. að
sprauta sápuvatni í augað á sjálfri mér, en eins og margir vita er
undirrituð með ilmefnaofnæmi og þið getið rétt svo ímyndað ykkur
útlitið á mér þegar ég fór í rúmið í gær, með annað augað
eeeeldrautt og bólgið... Ekki skrítið að mér sé meinilla við þessa
iðju!
»
06.03.2007 20:48:15 / helgavo
Hver fann eiginlega upp á því að tefalhúða pönnur? Þetta er
snilld! (já, ég var að vaska upp...) Ég veit að ég get flett þessu
upp, en mig langaði samt að spyrja að þessu hérna, ekki svo mikið
til að lýsa yfir fáfræði minni um sögu teflonsins, heldur frekar
til að lýsa yfir aðdáun á þessu frábæra efni, sem gerir að verkum
að maturinn brennur ekki við og ekkert mál er að þrífa pönnuna á
eftir...
Eitt enn: Hvað segir það eiginlega um eldhúshnífasafn mitt, að
besti hnífurinn sem ég á, er úr Tiger og kostaði 400 Isk?? Ég kýs
að túlka það á þann veg, að hnífarnir úr Tiger séu mun betri en
búast mætti við!
Og sko hvað ég er dugleg að taka sjálfa mig á orðinu! Bara
strax búin að blogga aftur!
»
06.03.2007 20:16:10 / helgavo
Jæja, ég strengdi engin nýársheit, en núna skal ég strengja
mars-heit: ég skal verða duglegri að blogga.
Ég var á Vestfjörðum um daginn með skólanum. Það var frábært og
ég mæli eindregið með því að fólk kíki þangað. Ef þið viljið fleiri
dirty details um þá ferð verðið þið bara að hafa samband við mig,
ég fer nú ekki að blogga um slíkt Ekki að það hafi gerst neitt
merkilegt, ég er bara að reyna að láta líf mitt hljóma meira
spennandi en að er í raun...
Það er fáránlega erfitt að blogga með malandi kött í
fanginu!!
Annar gengur lífið bara sinn vanagang, skóli og vinna og
heimalærdómur og vinir...
Ég er búin að ákveða lokaverkefni í hagnýtu, á að vísu eftir að
fá það samþykkt og fjármagnað og allt slíkt - en ég skal! Ég mun
öruglega skrifa meira um það seinna...
Og svo er komið vor! Ekki nóg með að það er farið að vera bjart
þegar maður fer á fætur á morgnanna, og marsmánuður er víst
vormánuður samkvæmt dagatalinu, heldur sá ég "vintergæk" áðan þegar
ég var að labba úr vinnunni í strætó! Ég hef ekki grænan, hvað
þetta blóm heitir á íslensku, en það er allavega mikill vorboði í
mínum huga... Og svo tengi ég það líka við páskaegg 
Jæja elskurnar mínar, verið nú duglegar að kommenta og reka á
eftir mér (ég skal reyna að fá meira í yfirlit næsta árs en "ég var
að vinna - bloggaði einusinni!" ) ")...
»
06.02.2007 23:24:51 / helgavo
Ég er búin að
sjá það á ótal bloggsíðum vinkvenna undanfarið (já, merkilegt
nokk eru það aðalega vinKONUR sem blogga, ekki mikið um að
strákarnir geri það, allavega ekki strákarnir mínir) að það er
víst til siðs að gera síðasta ár upp svona í upphafi nýja
ársins... Ætli ég geri ekki það eina sem svona hópsál eins og ég
get gert og fylgi því eftir...
En frá hverju á að segja? Árið 2006 er liðið, í aldanna skaut og
aaaaaldrei það keeeemur tilbaaaaka, eins og einhver sagði...
Látum okkur nú sjá hvort ég muni eftir einhverju, og hvort það sé
þá merkilegt líka...
(ég á eftir að gleyma helling, ekki taka því persónulega!)
Gerum þetta skipulega, ég ætla að taka mánuð fyrir mánuð...
Janúar: Dísus, það er svo langt síðan, ég man ekkert hvað
gerðist þá! Jú, það var víst áramótapartí í Holtsgötunni, þá
var Theó búinn að vera þar í tæpan mánuð. Ynju fannst flugeldarnir
æði.
Febrúar: Ég byrjaði að íhuga hvort ekki væri tími til kominn
að fara að íhuga að jafnvel fara að byrja kanski að hugsa um að
fara að fara að byrja að pæla í ritgerðasmíð...
Mars: Hvað gerðist í mars?? Man ekki, öruglega bara
ritgerðarsmíð og undirbúningur að sýningunni. Svo vorum við líka
farin að plana sumarstarfið uppi á safni og ráða leiðsögumenn, ef
ég man rétt...
Apríl: Jói bróðir varð tvítugur. Ég byrjaði að blogga.
Maí: Ég skilaði annarri BA ritgerðinni, 9.000 orð um upphaf
danska minnihlutans í Suðurslésvík - á þýsku! Jafnframt vorum við á
fullu í að setja upp diskó/pönk og gera safnið klárt fyrir
sumaropnun. Landnámssýningin í Aðalstræti opnaði.
Júní: Ég ákvað að fresta skilum sagnfræðiritgerðinnar þangað
til í september. Safnið opnaði. Sýningin “mín” opnaði. Grillboð.
Það ringdi.
Júlí: Sumarstarf, vinna, rigning. Man
ekki eftir öðru. Það var planið mitt þetta sumar að njóta
þess að vera léttklædd í vinnunni á góðviðrisdögum, enda var
þetta fyrsta sumarið þar sem ég var ekki í síðu ullar- eða
klæðispilsi alla daga... En hvað varð um sólina?
Ágúst: Rigning. Allir voru að vinna um
verslunarmannahelgina. Útihátíð í Grafarvoginum. Grill og
risatjald. Við Theó hættum saman.
September: Ferðalög. Fyrst til Alta með
mömmu á heimsminjaráðstefnu. Síðan sóttum við útisöfnin heim,
bæði Maihaugen og Norsk Folkemuseum. Síðan fór mamma heim, en
ég varð eftir og beið eftir hinum úr Nordklúbbnum. ”Heja
Norge” heppnaðist bara vel og mér skilst að það hafi tekist
að koma noskri ungmennahreyfingu af stað. Húrra! Svo kom
ég heim og vakti í tvo sólahringa að horfa á lélegar
bíómyndir með Þóri... Steig síðan upp í vél til Skt.
Pétursborgar með Árbæjarsafnsliðinu. Frábær ferð. Ballet og
Vetrahöllin og einkasafn Péturs mikla...
Október: Afmæli. Útskrift. Kennsla.
Stofnuðum kórinn.
Nóvember: Það var gaman að kenna í FG.
Mér fannst það fróðlegt. Ég fékk kennslumatið um daginn og
kem bara nokkuð vel út, þótt ég segi sjálf frá. Svo virðist
sem flestum krakkanna finnist ég eiga heima í kennslu

Desember: Hvað varð um desember? Ég veit
að ég var að kenna, ég var að vinna á Árbæjarsafni, ég var að
vinna á Landnámssýningunni, það voru jól, við stússuðumst í
að tæma Holtsgötuna, kórinn söng á fullt, fullt af tónleikum
og eitthvað fleira gerðist líka. Samt finnst mér þessi mánuður
bara hafa horfið og lítið sem ekkert gerst! Jólin fóru
eiginlega bara framhjá mér, voru bara búin áður en þau voru
byrjuð, en svona er lífið víst stundum J
Þetta var stutt yfirlit yfir árið
2006. Þegar ég les þetta svona í gegn eftirá, þá sé ég að það
gerðist bara heilmikið...
Ætli 2007 verði líka svona
viðburðaríkt? Svo virðist vera, allavega er ný íbúð, ný vinna og
nýtt nám komið á listann. Og febrúar er rétt að byrja! Það verður
gaman að sjá hvernig lífið er að ári...
Allavega, ætli þetta sé ekki nóg í
bili?? Segjum það 
»
06.02.2007 23:23:43 / helgavo
 Hvað er að gerast?? Komnir rúmlega 2000 gestir! Ma'r bara orðinn
vinsæll allt í einu
Það myndi nú gleðja mig ef ég fengi komment eða fólk kvittaði í
gestabókina...
»
14.01.2007 20:18:38 / helgavo
Jú, ætli það sé ekki kominn tími á nýja færslu... Mikið búið að
vera að gerast undanfarið!
Gleðilegt nýtt ár! Kanski ágætt að byrja á því
Annars legst nýja árið alveg hreint mjöög vel í mig. Ég er flutt
núna, við Jói erum á fullu að innrétta nýju íbúðina (með mikilli
aðstoð foreldranna), en þetta er enn helst til frumstætt hjá
okkur... Í dag vorum við að færa skápa. Núna getum við farið að
versla í matinn og sett hann í ísskápinn! Við erum búin að tengja
hann  Þetta er allt að koma...
Svo er ég byrjuð að vinna hjá Norræna félaginu. Nýja vinnan leggst
vel í mig, ég hlakka til að starfa við þetta. Ég held að ég sé að
ná tökum á þessu, en það er gott að vita að ég get leitað til Ölmu,
Virpi og Katrínar eftir aðstoð ef á þarf...
Skólinn byrjar byrjar á þriðjudaginn kemur og ég hlakka mikið
til...
Og svo er það nýjasta fréttin: Ég er komin með fartölvu! Ég gerðist
fullorðin, skrifaði undir minn fyrsta víxil og á núna þessa líka
yndælu vél, sem ég er að skrifa á... Gaman
Annars er ég eitthvað voðalega andlaus í augnablikinu, veit ekkert
hvað ég á að skrifa, þannig ætli ég láti þetta ekki bara gott heita
í bili
»
22.12.2006 16:28:22 / helgavo
Komst að því í gær að ég er orðin gömul... Fór á jólaball
stúdenta, sem er svosem ekki frásögu færandi, þar var mikið fjör og
spilaði Sálin hans Jóns míns fyrir dansi. Gyða og Hulda kíktu með
mér, auk Theó og Áka bróður hans, sem er á landinu eins og er.
Annars hitti ég ekki marga sem ég kannaðist við, en vil þó segja
frá tveim hér...
Fyrst var ég að rölta um svæðið, þá allt í einu hoppar stúlka í
fangið á mér og knúúúúsar mig af öllu afli "hæææææ Heeeelgaaa!" og
ég geri eins og maður gerir, knúsa á móti og heilsa. Var samt engu
nær hver stúlkan var. Síðan snýr hún sér að vinum sínum og kynnir
mig: "Þetta er Helga, þýskukennarinn minn!" Þá var þetta einn af
nemendunum úr FG og ég veit núna hvað hún heitir (og að hún fékk 10
á munnlega prófinu hjá mér )... Ég fer aldrei á djammið aftur!
Hugsa sér að rekast á gamla nemendur sína þar 
Svo var það hinn kunninginn... Ég fór á barinn að panta mér
gin&tonic og hvað haldiði ekki að annar barþjóninn hafi blikkað
mig! Ég horfði skilningsvana á móti, því það var verið að afgreiða
mig og ég gat ekki hugsað mér hvað maðurinn vildi eiginlega. Þá
spyr hann "hva' þekkirðu mig ekki? Og það eftir öll þessi ár í
Shadowblades!!" Hvernig á maður líka að þekkja fólk sem er með
manni í guildi í on-line tölvuleik?? Er það furða að ég hváði! Ég
bara spyr...
»
19.12.2006 11:50:12 / helgavo
Það er alveg ótrúlegt hvað lífið smellur saman hjá mér... Ég var
ekki fyrr búin að ljúka námi en ég gat byrjað í nýrri, spennandi og
gefandi vinnu, en eins og glöggir muna þá útskrifaðist ég úr HÍ
þann 21. október og tók að kenna strax þann 23. Svo þegar því öllu
var lokið fór ég aftur upp á safn að taka leiðsagnir, sem er gaman
en samt orðið frekar þreytt eftir öll þessi ár.
Eftir fyrsta daginn þar, í strætó á leiðinni heim, fór ég að hugsa
með mér "hmm... Ég er bara að vinna á safninu fram að áramótum.
Hvað á ég svo að gera? Ég þarf einhverja vinnu með þessum einingum
sem ég er að taka í masternum í vor..." Ég kom heim, þungt hugsi,
og settist við tölvuna til að skoða tölvupóstinn... Haldiði ekki að
þar hafi beðið mín póstur frá Norræna félaginu, sem sendur
hafði verið út á þeirra póstlista. Þetta var auglýsing og var
auglýst staða, sem mér þótti mjög áhugaverð. Ég sótti því um, en
umsóknarfresturinn rann út á föstudaginn var. Síðan hringdu þeir í
mig í gær, í heldur óformlegt símaviðtal, en ég hlýt að hafa komið
vel fyrir, því rétt í þessu hringdu þeir í mig aftur og ég fékk
starfið! Byrja að vinna þar 5. jan! Gamangaman
Og Alma mín, ef þú lest einhverntíman bloggið mitt, þá vil ég bara
segja að ég er ótrúlega glöð að hafa fengið þetta. Ég hlakka mikið
til að byrja, en ég er líka fegin að þú verður þarna fyrstu tvo
dagana til að setja mig af stað
»
23.11.2006 12:46:37 / helgavo
Nei, vá, var að taka eftir því núna að ég hef fengið rúmlega
1000 gesti inn á síðuna síðan ég byrjaði! Frábært 
Verst þykir mér, að ég á öruglega helminginn af færslunum sjálf,
því ég er alltaf að tékka hvort einhver hafi skrifað í gestabókina
eða kommentað á færslu - svona er maður athyglissjúkur 
Annars er lítið að segja... Vinna, vinna, vinna o.s.frv. En nú
fer að styttast í að önnin klárist, dimision á morgun og svo
kennsla fram á fimmstudag 
»
13.11.2006 11:16:25 / helgavo
Þá veit ég það... Hvítvín, hálka og háir hælar fara ekki vel
saman!
Við Hulda fórum í vísindaferð til Vífilfells á föstudaginn var,
áhugaverður rúntur, gamlar auglýsingar og þetta líka fína hvítvín í
boði... Hvorug okkar hafði borðað mikið yfir daginn - og fróðir
menn vita hvernig slíkt endar! Það vildi ekki betur til en svo, að
á leiðinni út þá steig ég eitthvað vitlaust, tókst á loft og lennti
beint á bakinu (Hulda heldur því fram að ég hafi legið lárétt í
loftinu áður en ég hlammaðist niður). Þá fyrst fór áfengið að
virka, þegar adrenalínið spýttist af stað og varð undirrituð frekar
skrautleg - og það klukkan 7 á föstudagskvöldi!
Við fengum elskuna hann Óla til að sækja okkur og fórum heim, en
þar var húsið fullt af fólki, Ingunn og Baldur í heimsókn hjá Theó
og ég sem ætlaði að vera svo félagslynd var búin á því rétt um 11
og komin í rúmið...
Vaknaði á laugardag með kúlu og smá hausverk, en fannst það bara
vel sloppið, svona miðað við allt. Fór með leiðsögn um Kvosina, því
Nordklúbburinn fékk heimsókn hóps krakka frá Danmörku og þau þurftu
náttla að kynnast Reykjavík. Við fórum síðan upp á safn og tók Jói
leiðsögn þar.
Svo ætluðum við Hafdís, Hulda og Þórdís sko svo sannarlega að
skemmta okkur um kvöldið, enduðum heima með hvítvín (að vanda ),
stelputónlist og hárspennur að skemmta okkur og raid'uðum
barskápinn þegar líða fór á kvöldið, en auk þess hafði búkonan
Hulda tekið með sér tequilaflösku... Þórir og Óli kíktu við og eins
einhverjir vinir Huldu. Mikið fjör og mikið gaman, en eitthvað varð
þetta skrautlegt þegar líða tók á nóttina...
Svo ætluðum við bara að hafa það gott í gær, en þá kom
eftirkastið eftir hið mikla fall föstudagsins - bakið gaf sig. Á
skrifandi stundu er ég eins og gamalmenni, get varla gengið upprétt
og allt gerist voða hægt. Ég er gangandi dæmi um það, af hverju
nemendur mínir ættu ekki að drekka...
En annars var gærdagurinn kósí, við horfðum á Amelié, Goodbye
Lenin og 7 Zwerge, allt góðar myndir og engin þeirra amerísk!
Yndislegur leti-sunnudagur, þrátt fyrir bakverki... En eins og
mamma myndi segja - þetta grær áður en ég gifti mig!
Nóg um það, gatið er að verða búið hjá mér, gríslingarnir bíða.
Við heyrumst!
»
Síður: 1 2
|
Dagsetning
10. febrúar 2012
|